fbpx

Skilmálar

Ísbílaútgerðin ehf. – Kt.  560206-1430  – VSK númer: 89551

Reikningsviðskipti

Hafi verið samið um annan greiðslumáta en greiðslur með greiðslukorti sendir Ísbílaútgerðin út reikning fyrir selda vöru. Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Ísbílaútgerðarinnar ehf. og viðskiptavina. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags.

Ef reikningar eru ekki greiddir 10 dögum eftir eindaga fara kröfurnar sjálfkrafa til Inkasso til innheimtu með tilheyrandi kostnaði. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast til Ísbílaútgerðarinnar innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.

Verð

Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Verð á síðunni geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur

Greiða skal fyrir vöru með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd nema um annað sé samið.

Skila- og endurgreiðsluréttur

Enginn skila- og endurgreiðsluréttur er á vörunum. En komi upp galli á vörunum er hvert mál skoðað fyrir sig.

Trúnaður

Kaupanda er heitið fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum. Ef kemur upp ágreiningur milli kaupenda og seljanda vegna skilmála Ísbílaútgerðarinnar ehf., verður málinu vísað til íslenskra dómstóla.

Shopping Cart
Scroll to Top