fbpx

Starf hjá Ísbílnum

Ísbíllinn starfar mest yfir sumartímann og þá fara ísbílar um allar sveitir og bæi landsins á tveggja vikna fresti. Einnig ferðast Ísbíllinn um götur bæjarins öll kvöld vikunnar. Það eru því nokkrar stöður í boði fyrir sumarstarfsmenn.

Ísbílsstjóri 

Starfslýsing 

Starfið felst í því að aka Ísbílum samkvæmt auglýstri áætlun og gleðja börn og fullorðna um allt land með því að færa þeim ljúffengan rjómaís í fullkomnum gæðum. Brosandi andlit viðskiptavina gera starfið mjög skemmtilegt. Vaktir af öllum gerðum eru í boði: dagsferðir í nágrenni höfuðborgarinnar, hálfsdagsferðir á höfuðborgarsvæðinu og lengri ferðir út á land. Í lengri ferðum er fæði og gisting greidd. Fullt starf samsvarar 7,5 tólf tíma vinnudögum á hverjum 2 vikum. Einnig er í boði hlutastarf á kvöldin og um helgar og möguleiki á aukavöktum fyrir þá sem það vilja. 

Hafir þú áhuga á landi og þjóð, á mannlegum samskiptum, á akstri og ferðalögum eða bara vellaunuðu sumarstarfi, og teljir þú þig gæddan mörgum af ofangreindum mannkostum, hæfileikum og/eða reynslu, þá gæti starf hjá Ísbílnum verið eitthvað fyrir þig. Sumarstafsmönnum stendur til boða áframhaldandi helgarvinna með skóla, og/eða starf fram að jólum.

Kröfur

Umsækjendur verða að hafa bílpróf og jákvætt hugarfar. Akstursreynsla er æskileg sem og reynsla af afgreiðslu- og sölustörfum. Umfram allt þurfa umsækjendur að vera kurteisir, brosmildir, stundvísir, iðjusamir og snyrtilegir. Þeir þurfa að geta starfað sjálfstætt og búa yfir þjónustuhæfileikum.

Lagerstarfsmaður – eingöngu sumarstarf 

Starfslýsing

Starfið felst í því að lesta ísbíla og gera þá klára fyrir söluferðir. Vinnutími er frá 9 til 16 alla virka daga auk 4 klukkutíma vakt aðra hvora helgi.

Kröfur

Æskilegt að umsækjendur hafi bílpróf. Æskilegt að starfsmenn eigi auðvelt með að átta sig á tölum, hleðsluplönum og þess háttar.

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum er hægt að hafa samband við Ásgeir í síma 860 2410 eða senda fyrirspurn á tölvupósti á netfangið umsoknir@isbillinn.is

Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að sækja um starf.

Shopping Cart
Scroll to Top